Sundlaugar opna 10. desember

Kæru GYM heilsu meðlimir.

Nú hafa sundlaugarnar opnað aftur og því kærkomið að nýta sér það. Heilsuræktirnar verða áfram lokaðar þar til leyfi fæst til að opna þær aftur.

Kveðja, GYM heilsa.

Gym heilsa upplýsingar

Framkvæmdir í Suðurbæjarlaug ganga vel og búið er að opna útiklefa og útilaugina ásamt pottum. Ræktin er að sjálfsögðu opin.

Hóptímar eru hafnir í Grindavík og jóga byrjar í Álftaneslaug 22. september.

Við minnum á tilboð á árskortum, sem er í gangi til 7. október.

Verið velkomin.

Kveðja, Gym heilsa.

Suðurbæjarlaug framkvæmdir

Vinna við þak Suðurbæjarlaugar er í fullum gangi. Frá og með 20. júlí lokar sundsvæðið í nokkrar vikur en GYM heilsa verður áfram opin.

Við minnum korthafa á að þeir hafa aðgang að Ásvallalaug og Sundhöll Hafnarfjarðar.

COVID-19 tilmæli

 

 

Covid 19 frekari tilmæli

Kæru GYM heilsu meðlimir athugið.

Við biðjum ykkur vinsamlegast að fara eftir tilmælum yfirvalda þar sem mælst er til þess að halda ca. 2 metra fjarlægð á milli fólks (þess vegna eru ekki öll þrektæki í notkun).

Gott er að vera í hönskum/grifflum þegar æft er.

Hóstið/hnerrið í pappír eða í olnbogabót og þvoið ykkur á eftir.

Munið að handþvottur er einn mikilvægasti þátturinn til minnka líkur á smiti.

Þrífum tæki/áhöld eftir notkun.

Verum skynsöm og sýnum varkárni og ábyrgð. Setjum heilsuna í fyrsta sæti.

 

Tilboð á árskortum til 8. október

GYM heilsa býður frábær tilboð á öllum stöðvum sínum, á árskortum sem gilda í líkamsrækt og sund í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Nánari upplýsingar í afgreiðslu sundlauganna.

Gildir til 8. október 2019.

20 ár í Suðurbæjarlaug

GYM heilsa fagnar 20 ára starfsafmæli í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. Af því tilefni bjóðum við frábært afmælistilboð, sem gildir til og með mánudagsins 11. mars 2019. Árskort í líkamsrækt og sund á aðeins 35.990 kr.

Sjá nánar í auglýsingu hér fyrir neðan.

 

 

Álftaneslaug – breytingar

GYM heilsa og bæjaryfirvöld Garðabæjar hafa ákveðið að breyta starfssemi GYM heilsu í Álftaneslaug. Munu breytingarnar taka gildi í september 2018. Með breytingunum eykst þjónusta við meðlimi.

Hóptímar verða í boði og verða þeir síðla dags. (nákvæm dagsetning og tímatafla auglýst síðar). Í boði verður m.a. Yoga, stöðvarþjálfun, core o.fl. Aðgangur að hóptímum er innifalinn í verði korts.

 

 

 

Lengri opnunartími í Suðurbæjarlaug

Þann 2. maí 2018 breytist opnunartími Suðurbæjarlaugar og verður eftirfarandi:

Opið mánudag – fimmtudags frá kl. 06:30 – 22:00

Opið á föstudögum frá kl. 06:30 – 20:00

Opið á laugardögum frá kl. 08:00 – 18:00

Opið á sunnudögum frá kl. 08:00 – 17:00 / en athugið, í sumar verður opið til kl. 21 á sunnudögum. Vinsamlegast fylgist með auglýsingum í mannvirkinu hvenær sú breyting tekur gildi.