Sudurbaejarlaug

Opnum aftur föstudaginn 16. apríl

Sundlaugar landsins opnuðu aftur 15. apríl og Gym heilsa 16. apríl en með miklum takmörkunum, þar sem farið er eftir nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra.

Nauðsynlegt er að skrá sig í tíma í afgreiðslu sundlauganna og fylgja fyrirmælum (sjá blað).

Verið velkomin.

 

 

 

 

Gymheilsa is 10

GYM heilsa opnar aftur

Mánudaginn 18. janúar opnar GYM heilsa aftur stöðvarnar með miklum takmörkunum (sjá leiðbeiningar) í samræmi við gildandi reglugerðir heilbrigðisráðherra. Við biðjum ykkur að kynna ykkur reglurnar vel og virða þær, öðruvísi gengur þetta ekki upp. Nauðsynlegt er að skrá sig til að geta mætt og við minnum á að ekki er hægt að nota búningsklefa fyrir æfingu. Vinsamlegast mætið einungis 5 mínútum fyrir ykkar bókaða tíma. Í Suðurbæjarlaug er gengið inn í ræktina niður rampinn.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Kveðja, starfsfólk GYM heilsu.

 

 

Sudurbaejarlaug

Sundlaugar opna 10. desember

Kæru GYM heilsu meðlimir.

Nú hafa sundlaugarnar opnað aftur og því kærkomið að nýta sér það. Heilsuræktirnar verða áfram lokaðar þar til leyfi fæst til að opna þær aftur.

Kveðja, GYM heilsa.

Image43

Gym heilsa upplýsingar

Framkvæmdir í Suðurbæjarlaug ganga vel og búið er að opna útiklefa og útilaugina ásamt pottum. Ræktin er að sjálfsögðu opin.

Hóptímar eru hafnir í Grindavík og jóga byrjar í Álftaneslaug 22. september.

Við minnum á tilboð á árskortum, sem er í gangi til 7. október.

Verið velkomin.

Kveðja, Gym heilsa.

Sudurbaejarlaug

Suðurbæjarlaug framkvæmdir

Vinna við þak Suðurbæjarlaugar er í fullum gangi. Frá og með 20. júlí lokar sundsvæðið í nokkrar vikur en GYM heilsa verður áfram opin.

Við minnum korthafa á að þeir hafa aðgang að Ásvallalaug og Sundhöll Hafnarfjarðar.

Handþvottur

COVID-19 tilmæli

 

 

Covid 19 frekari tilmæli

Kæru GYM heilsu meðlimir athugið.

Við biðjum ykkur vinsamlegast að fara eftir tilmælum yfirvalda þar sem mælst er til þess að halda ca. 2 metra fjarlægð á milli fólks (þess vegna eru ekki öll þrektæki í notkun).

Gott er að vera í hönskum/grifflum þegar æft er.

Hóstið/hnerrið í pappír eða í olnbogabót og þvoið ykkur á eftir.

Munið að handþvottur er einn mikilvægasti þátturinn til minnka líkur á smiti.

Þrífum tæki/áhöld eftir notkun.

Verum skynsöm og sýnum varkárni og ábyrgð. Setjum heilsuna í fyrsta sæti.

 

Gymheilsa is 10

Tilboð á árskortum til 8. október

GYM heilsa býður frábær tilboð á öllum stöðvum sínum, á árskortum sem gilda í líkamsrækt og sund í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Nánari upplýsingar í afgreiðslu sundlauganna.

Gildir til 8. október 2019.