Hóptímar byrja mánudaginn 24. ágúst
Hóptímar í Kópavogi og Hafnarfirði byrja aftur mánudaginn 24. ágúst. Glæsilegar nýjar stundaskrár verða auglýstar þegar nær dregur.
Kveðja, starfsfólk.
Hóptímar í Kópavogi og Hafnarfirði byrja aftur mánudaginn 24. ágúst. Glæsilegar nýjar stundaskrár verða auglýstar þegar nær dregur.
Kveðja, starfsfólk.

Lokað verður í Suðurbæjarlaug dagana 10.-14. ágúst vegna viðhaldsverkefna og opnar aftur laugardaginn 15. ágúst. Við minnum á að hægt er að æfa í stöðvunum í Kópavogi gegn greiðslu aðgangseyris í sund.
Kveðja, starfsfólk.
Kæru viðskiptavinir. Það verður lokað í Salalaug mánudaginn 3. ágúst, á frídegi verslunarmanna en opið í Sundlaug Kópavogs frá kl. 8-18.
Með kveðju, starfsfólk GYM heilsu.

Hóptímar hjá GYM heilsu eru komnir í sumarfrí og ný stundaskrá verður auglýst um miðjan ágúst.
Gleðilegt sumar, starfsfólk GYM heilsu.
Opið verður í Sundlaug Kópavogs og Salalaug þann 17. júní frá kl. 8:00-18:00. Þann 19. júní loka mannvirkin kl. 12:30.
Verið velkomin, starfsfólk GYM heilsu.

Ný glæsileg og endurbætt heilsuræktarstöð opnar í Grindavík föstudaginn 5. júní. Af því tilefni er opið hús hjá GYM heilsu í Grindavík, fimmtudaginn 4. júní milli kl. 17:00 og 18:30 fyrir þá sem vilja skoða stöðina
Opnunartilboð GYM heilsu af þessu tilefni er árskort í líkamsrækt og sund á aðeins 35.990 kr. Tilboðið gildir dagana 4.-8. júní 2015.
Verið velkomin, starfsfólk GYM heilsu.
Kópavogsbær og GYM heilsa hafa stóraukið opnunartíma í sundlaugum bæjarins á árinu 2015. Nú er opið nær alla daga ársins (a.m.k. í annarri sundlauginni).
Páskaopnun o.fl. dagar 2015 í Sundlaugum Kópavogs og Hafnarfirði.
| Salalaug | Sundlaug Kópavogs | Suðurbæjarlaug | ||||
| 2. apríl – skírdagur | kl. 8-18 | Lokað | kl. 8-17 | |||
| 3. apríl – föstud. Langi | Lokað | kl. 8-18 | Lokað | |||
| 4. apríl – laugardagur | kl. 8-18 | kl. 8-18 | kl. 8-18 | |||
| 5. apríl – páskadagur | Lokað | kl. 8-18 | Lokað | |||
| 6. apríl – annar í páskum | kl. 8-18 | Lokað | kl. 8-17 | |||
| 23. apríl – sumard. fyrsti | kl. 8-18 | kl. 8-18 | kl. 8-17 | |||
| 1. maí | kl. 8-18 | Lokað | Lokað | |||
| 14. maí – uppstigningad. | Lokað | kl. 8-18 | ÓVÍST | |||
| 24. maí – hvítasunnud. | kl. 8-18 | kl. 8-18 | ÓVÍST | |||
| 25. maí | kl. 8-18 | kl. 8-18 | ÓVÍST | |||
Ath. Hóptímar í Sundlaug Kópavogs og Suðurbæjarlaug falla niður á rauðum dögum. Páskahelgina 2. apríl til og með 6. apríl falla allir hóptímar niður í báðum sundlaugum alla dagana nema eftirfarandi:
Laugardaginn 4. april verða eftirfarandi tímar í Sundlaug Kópavogs:
Kl. 10:15 Spinning
Kl. 11:15 Zumba
Og í Suðurbæjarlaug verður spinning kl. 10:30
Samkvæmt verðkönnun DV um miðjan janúar eru árskortin hjá GYM heilsu langódýrust. Í könnuninni kemur fram að árskortin í Kópavogi (sem nú eru á tilboðsverði á aðeins kr. 37.990,-) eru tugum þúsunda ódýrari en hjá samkeppnisaðilum GYM heilsu. Það er því ljóst að neytendur geta sparað sér háar fjárhæðir með því að velja GYM heilsu.
Grindavíkurbær og GYM heilsa hafa undirritað nýjan samning. Ný glæsileg heilsurækt opnar í febrúar 2015 í sundlaugarmannvirki bæjarins. Það eru því spennandi tímar framundan hjá GYM heilsu og íbúum Grindavíkur.
Samningi GYM heilsu og Kópavogsbæjar hefur verið framlengt til 1 júní 2016. GYM heilsa getur því aftur hafið sölu árskorta. GYM heilsa er með frábært tilboð á árskortum til og með 22.sept, eða aðeins 35.990kr. Kortið gildir í líkamsrækt og sund bæði í Salalaug og Sundlaug Kópavogs, verið velkomin.