Frábært verð á hjóna/parakortum
GYM heilsa er með frábært verð á árskortum fyrir hjón/pör. Kynnið ykkur málið á ykkar stöð eða hér á síðunni undir liðnum verðskrá.
GYM heilsa er með frábært verð á árskortum fyrir hjón/pör. Kynnið ykkur málið á ykkar stöð eða hér á síðunni undir liðnum verðskrá.
Á Hellu er verið að tvöfalda stærð heilsuræktar GYM heilsu. Framkvæmdir ganga vel og það verður virkilega spennandi þegar allt verður tilbúið. Með stærri heilsurækt eykst fjölbreytnin og von er á fleiri tækjum strax og opnað verður að framkvæmdum loknum. Enn fleiri tæki og tól bætast svo við í vetur.
Hóptímar í Kópavogi og Hafnarfirði byrja aftur mánudaginn 24. ágúst. Glæsilegar nýjar stundaskrár verða auglýstar þegar nær dregur.
Kveðja, starfsfólk.

Lokað verður í Suðurbæjarlaug dagana 10.-14. ágúst vegna viðhaldsverkefna og opnar aftur laugardaginn 15. ágúst. Við minnum á að hægt er að æfa í stöðvunum í Kópavogi gegn greiðslu aðgangseyris í sund.
Kveðja, starfsfólk.
Kæru viðskiptavinir. Það verður lokað í Salalaug mánudaginn 3. ágúst, á frídegi verslunarmanna en opið í Sundlaug Kópavogs frá kl. 8-18.
Með kveðju, starfsfólk GYM heilsu.

Hóptímar hjá GYM heilsu eru komnir í sumarfrí og ný stundaskrá verður auglýst um miðjan ágúst.
Gleðilegt sumar, starfsfólk GYM heilsu.
Opið verður í Sundlaug Kópavogs og Salalaug þann 17. júní frá kl. 8:00-18:00. Þann 19. júní loka mannvirkin kl. 12:30.
Verið velkomin, starfsfólk GYM heilsu.

Ný glæsileg og endurbætt heilsuræktarstöð opnar í Grindavík föstudaginn 5. júní. Af því tilefni er opið hús hjá GYM heilsu í Grindavík, fimmtudaginn 4. júní milli kl. 17:00 og 18:30 fyrir þá sem vilja skoða stöðina
Opnunartilboð GYM heilsu af þessu tilefni er árskort í líkamsrækt og sund á aðeins 35.990 kr. Tilboðið gildir dagana 4.-8. júní 2015.
Verið velkomin, starfsfólk GYM heilsu.
Kópavogsbær og GYM heilsa hafa stóraukið opnunartíma í sundlaugum bæjarins á árinu 2015. Nú er opið nær alla daga ársins (a.m.k. í annarri sundlauginni).
Páskaopnun o.fl. dagar 2015 í Sundlaugum Kópavogs og Hafnarfirði.
| Salalaug | Sundlaug Kópavogs | Suðurbæjarlaug | ||||
| 2. apríl – skírdagur | kl. 8-18 | Lokað | kl. 8-17 | |||
| 3. apríl – föstud. Langi | Lokað | kl. 8-18 | Lokað | |||
| 4. apríl – laugardagur | kl. 8-18 | kl. 8-18 | kl. 8-18 | |||
| 5. apríl – páskadagur | Lokað | kl. 8-18 | Lokað | |||
| 6. apríl – annar í páskum | kl. 8-18 | Lokað | kl. 8-17 | |||
| 23. apríl – sumard. fyrsti | kl. 8-18 | kl. 8-18 | kl. 8-17 | |||
| 1. maí | kl. 8-18 | Lokað | Lokað | |||
| 14. maí – uppstigningad. | Lokað | kl. 8-18 | ÓVÍST | |||
| 24. maí – hvítasunnud. | kl. 8-18 | kl. 8-18 | ÓVÍST | |||
| 25. maí | kl. 8-18 | kl. 8-18 | ÓVÍST | |||
Ath. Hóptímar í Sundlaug Kópavogs og Suðurbæjarlaug falla niður á rauðum dögum. Páskahelgina 2. apríl til og með 6. apríl falla allir hóptímar niður í báðum sundlaugum alla dagana nema eftirfarandi:
Laugardaginn 4. april verða eftirfarandi tímar í Sundlaug Kópavogs:
Kl. 10:15 Spinning
Kl. 11:15 Zumba
Og í Suðurbæjarlaug verður spinning kl. 10:30
Samkvæmt verðkönnun DV um miðjan janúar eru árskortin hjá GYM heilsu langódýrust. Í könnuninni kemur fram að árskortin í Kópavogi (sem nú eru á tilboðsverði á aðeins kr. 37.990,-) eru tugum þúsunda ódýrari en hjá samkeppnisaðilum GYM heilsu. Það er því ljóst að neytendur geta sparað sér háar fjárhæðir með því að velja GYM heilsu.