GYM heilsa og Grindavíkurbær hafa endurnýjað samning sinn um rekstur heilsuræktarinnar í íþróttamiðstöð bæjarins.
Við hjá GYM heilsu erum stolt af því að fá áfram að vera hluti af þjónustu við íbúa Grindavíkur. GYM heilsa hefur staðið heilshugar með Grindavík í upprisu bæjarins og mun halda því áfram af krafti.
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Grindavíkurbæ og að taka á móti bæjarbúum í heilsuræktinni.

