Miklar endurbætur hafa átt sér stað í Suðurbæjarlaug undanfarna mánuði. Bæði aðal tækjasalurinn og lyftingasalurinn hafa verið teknir í gegn, meðal annars með nýrri loftræstingu og bættri lýsingu.
Auk þess hefur verið sett upp infrarauð sauna í bæði karla- og kvennaklefum á efri hæð, ásamt fleiri endurbótum sem bæta aðstöðu og upplifun gesta.
Við minnum á að korthafar GYM heilsu í Hafnarfirði geta nýtt sér báðar GYM heilsu stöðvarnar, auk sundlauganna í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug.
Verið velkomin.

