GYM heilsa eflir nú starfsemi sína í Hafnarfirði með hóptímum í Ásvallalaug, betrumbættri lyftingaraðstöðu og nýrri heilsumarkþjálfun.
Hóptímar hefjast í september
GYM heilsa hefur hóptíma að nýju eftir nokkurra ára hlé. Tímarnir hefjast þriðjudaginn 22. september og eru korthöfum að kostnaðarlausu.
Hóptímarnir verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10:00–11:00. Þar verður lögð áhersla á þol, styrk og liðkun í rólegu og jákvæðu umhverfi.
Tímarnir henta sérstaklega vel fólki á efri árum og öllum sem vilja hæfilega krefjandi hreyfingu án mikilla láta. Áhersla verður lögð á fjölbreyttar æfingar, góðar teygjur og að þátttakendur hafi bæði gagn og gaman af tímunum.
Betrumbætt lyftingaraðstaða
Lyftingaraðstaðan hefur einnig verið betrumbætt, bæði í Suðurbæjarlaug og Ásvallalaug.
Korthafar hafa aðgang að líkamsrækt og sundi í Suðurbæjarlaug og Ásvallalaug, auk sundaðstöðu í Sundhöll Hafnarfjarðar. Innifalinn í verði kortsins er tími með þjálfara sem leiðbeinir um notkun tækjanna.
Ný heilsumarkþjálfun
Anna María Vestmann hjá Heildarheilsu býður upp á persónulega og einstaklingsmiðaða heilsumarkþjálfun.
Markþjálfunin hjálpar fólki að gera raunhæfar og einfaldar breytingar á lífsvenjum sem stuðla að bættri heilsu, jafnari orku og meiri vellíðan. Meðal annars er unnið með mataræði og matarvenjur, svefn og hvíld, streitustjórnun, hreyfingu, daglega virkni og almenna vellíðan.
Nánari upplýsingar um heilsumarkþjálfunina má finna á Facebook og Instagram undir nafninu Heildarheilsa.
Árskort í líkamsrækt og sund
Almennt árskort í líkamsrækt og sund kostar 45.990 kr., sem samsvarar 3.833 kr. á mánuði.
Árskort fyrir 60–67 ára kostar 37.990 kr. og árskort fyrir eldri borgara, öryrkja og grunnskólanemendur kostar 31.990 kr.
Kortasala fer eingöngu fram í afgreiðslu Ásvallalaugar og Suðurbæjarlaugar og einungis er hægt að greiða kortið með eingreiðslu.

